Á milli Austurbergs og Vesturbergs í Efra – Breiðholti er allstórt svæði. Þar eru lóðir Fellaskóla, Hólabrekkuskóla og Fjölbrautaskólans í Breiðholti auk Breiðholtslaugar og íþróttasvæðis Leiknis. En þar er einnig allstór almenningsgarður með grasflötum, trjálundum og leiksvæðum.

Aldur: 1984

Samgöngur:

Bílastæði við Breiðholtslaug og Fjölbrautaskólann í Breiðholti.
Strætóleiðir: 3-4-12-17. Stöðvar: Vesturberg – Hólabrekkuskóli – Gerðuberg – Fellaskóli.
Þar má finna: Garðyrkja – Bekkir – Leiksvæði – Sundlaug – Körfuboltavöllur – Tennisvöllur