Bringan er lítið en snoturt grænt svæði afmarkað af Snorrabraut, Eiríksgötu og Þorfinnsgötu. Bringan er í nokkrum halla og því byggð á stöllum. Þar er að finna styttuna Járnsmiðinn eftir Ásmund Sveinsson.

Aldur: 1950.

Samgöngur:

Bílastæði við Snorrabraut, Eiríksgötu, Þorfinnsgötu og Leifsgötu.
Strætóleiðir: 14-15-18-19. Stöðvar: Snorrabraut.
Þar er að finna: Garðyrkja – Bekkir – Listaverk