Grundargerðisgarður er lítill en vinalegur almenningsgarður við Grundargerði í Smáíbúðahverfinu í Reykjavík skammt frá verslunarhverfunum á Grensásvegi og í Skeifunni. Garðurinn var opnaður 1973 og er þar m.a. fallegur blómagarður með steinabeðum og nýlegt leiksvæði fyrir börn.

Aldur: 1973.

Stærð: 1 hektari

Samgöngur:

Bílastæði í götu við Grundargerði og Akurgerði.
Strætóleiðir:14-17-18. Stöðvar: Akurgerði, Grundargerði (17) og Heiðargerði (14, 18).
Þar má finna: Garðyrkja – Bekkir – Leiksvæði.

Heimildir:

Bragi Bergsson. 2012. Almenningsgarðar á Íslandi. Ritgerð til MA-prófs. Háskóli Íslands, Hugvísindasvið.