Heimilisfang

Kistuhyl
110 Reykjavík
Sími: 411 6304

Opnunartími

Vetur: 1. sept – 30. maí opið 13-17 alla daga.
Sumar: 1.júní – 31.ágúst opið 10-17 alla daga.

Aðgangseyrir

Fullorðnir: 1.700 kr.
Börn 0-17 ára: Ókeypis
Öryrkjar: Ókeypis

Nemendur gegn framvísun nemendaskírteinis: 900 kr.
Menningarkorthafar: Ókeypis

Menningarkortið: 6.000 kr

Menningarkortið fyrir 67+: 1.800 kr.

Um Árbæjarsafn

Árbæjarsafn er útisafn og auk Árbæjar eru þar yfir 20 hús, sem mynda torg, þorp og sveit. Í Árbæjarsafni er leitast við að gefa hugmynd um byggingalist og lifnaðarhætti í Reykjavík og á sumrin má þar sjá húsdýr og mannlíf fyrri tíma. Auk þess er boðið upp á fjölda sýninga og viðburða, þar sem einstökum þáttum í sögu Reykjavíkur eru gerð skil. Árbæjarsafn er einkar fjölskylduvænt safn en þar geta börn keyrt um í kassabílum og í einu húsi safnsins er leikfangasýning þar sem börn mega leika sér að vild.

Hægt er að sérpanta leiðsagnir fyrir almenna hópa með því að senda tölvupóst á arbaejarsafn@reykjavik.is. Skólahópar geta fengið ókeypis leiðsögn með því að senda tölvupóst á safnfraedsla@reykjavik.is.

Nánari upplýsingar og viðburði og aðra starfsemi safnsins er að finna á vef Borgarsögusafns.

Árbæjarsafn heyrir undir Borgarsögusafn: Eitt safn á fimm frábærum stöðum.