
Heimilisfang
Um Landnámssýninguna
Landnámssýningin heyrir undir Borgarsögusafn Reykjavíkur. Sýningin var opnuð í maí 2006 en á sýningunni er fjallað um landnám í Reykjavík og byggt er á fornleifarannsóknum sem fram hafa farið í miðbænum. Miðpunktur sýningarinnar er skálarúst frá 10. öld, sem fannst þegar grafið var fyrir nýju húsi á horni Aðalstrætis og Túngötu. Búið var í skálanum frá því um 930 til 1000. Norðan við skálann fannst veggjarbútur sem er ennþá eldri, eða frá því um eða fyrir 871 og eru það elstu mannvistarleifar sem fundist hafa á Íslandi.
Margmiðlunartækni er notuð til að útskýra byggingarlag húsa á víkingaöld. Einnig er hægt að skyggnast inn í skálann með hjálp tölvutækni og ímynda sér hvernig lífi heimilsfólksins var háttað. Á sýningunni er reynt að gefa hugmynd um umhverfi Reykjavíkur eins og það var við landnám. Þá eru sýndir munir sem fundist hafa við fornleifauppgröft í miðbæ Reykjavíkur.
Á sumrin er boðið upp á leiðsögn á ensku kl. 11 alla virka daga.
Hljóðleiðsagnir eru í boði, á íslensku, ensku, frönsku, þýsku og norsku.
Hægt er að sérpanta leiðsagnir fyrir almenna hópa með því að senda tölvupóst á landnam@reykjavik.is. Skólahópar geta fengið ókeypis leiðsögn með því að senda tölvupóst á safnfraedsla@reykjavik.is.
Nánari upplýsingar og viðburði og aðra starfsemi safnsins er að finna á vef Borgarsögusafns.
Afgreiðslutími
Opið alla daga 09:00 – 18:00
Aðgangseyrir
Fullorðnir: 1.700 kr.
Börn 0-17 ára: Ókeypis
Öryrkjar: Ókeypis
Nemendur gegn framvísun nemendaskírteinis: 900 kr.
Menningarkorthafar: Ókeypis
Menningarkortið: 6.000 kr
Menningarkortið fyrir 67+: 1.800 kr.