Álfabakki 8
109 Reykjavík

Sími: 575 8900
fax: 587 8910
Netfang: alfabakki@samfilm.is

Um Sambíóin Álfabakka:

Sambíóin Álfabakka var byggt árið 1982 og er eitt fullkomnasta kvikmyndahús á landinu. Þetta var fyrsta kvikmyndahúsið á norðurlöndum sem var búið THX kerfinu. Bíóið var fyrst kvikmyndahúsa á Íslandi til að bjóða uppá frumsýningar glænýrra kvikmynda og oft voru sankallaðar evrópufrumsýningar.

Önnur kvikmyndahús á þessum tíma buðu uppá kvikmyndir sem voru orðnar tveggja ára eða eldri.SAMbíóin Álfabakka brutu margar hefðir sem fyrir voru þegar það var opnað og má segja að með tilkomu þess hafi bíómenning íslands byrjað fyrir alvöru.

Sambíóin álfabakkka er í dag búið 6 kvikmyndasölum, þetta var fyrsta kvikmyndahúsið sem bauð upp á lúxus VIP sal, en sá salur er búinn þægilegum rafdrifnum sætum, sá salur var vígður í ágúst árið 2001

Salir: 6
Sætafjöldi: 948