Einstök hvalaskoðunarferð í töfrandi umhverfi.

Tímabil og brottfarartími:
15 júní – 31 júlí at 20:30
1 ágúst – 31 ágúst at 19:00
Tímalengd: 2,5-3,5 klst.

Við tökum á móti þér í heillandi umhverfi við gömlu höfnina í Reykjavík þar sem þú sækir brottfararspjald og færð nánari upplýsingar um hvert leiðin liggur næst. Aðeins nokkrum skrefum neðar á höfninni finnur þú landfasta bátinn okkar, Fífil, þar sem áhöfnin tekur á móti þér, en þar gefst tækifæri til að skoða einstakt sýningarrými sem leiðir þig um leyndardóma hafsins; einnar sinnar tegundar í heiminum!

Í þessari skemmtilegu kvöldsiglingu munt þú kynnast Reykjavík á annan hátt en þú hefur vanist. Miðnætursólin spilar stórt hlutverk og gefur ferðinni rómantískan og afslappandi blæ. Til að gera ferðina ennþá einstakari, munum við spila tónlist og jafnvel slökkva á vélum bátsins til að njóta okkur enn frekar.

Algengustu hvalirnir í Faxaflóa eru hrefnur, hnúfubakar, höfrungar og hnýsur. Þar sem hvalir sofa ekki fyllilega og eru jafnan spendýr, þurfa þeir að koma upp á yfirborðið annars lagið til þess að anda. Það eru því jafn miklar líkur á að sjá þá á kvöldin eins og á daginn. Ýtið hér til að fá frekari upplýsingar um þær tegundir sem við getum átt von á að sjá í ferðinni

Vinsamlegast athugið að við getum ekki ábyrgst að við munum sjá hvali eða höfrunga í einstakri ferð, þar sem þetta eru auðvitað villt dýr. Hinsvegar, ef ekkert sést munum við bjóða upp á endurkomumiða, sem gefur handhafa tækifæri á að koma aftur frítt innan tveggja ára. Gildistími miðanna má finna hér en einnig á sjálfum miðunum.
Þar sem öryggi og ánægja farþega okkar er í hávegum höfð, er ferðin ávallt háð góðum veður- og sjóskilyrðum. Ferðinni gæti því verið breytt (siglt frá annarri höfn t.d.) eða aflýst með stuttum fyrirvara. Við munum láta þig vita um leið og hægt er ef svo er. Þú getur einnig fylgst með þróun mála í dagbókinni okkar.

Innifalið í verði

  • 3 klst. sigling um Faxaflóa
  • Heilgallar, teppi og regnjakkar í boði
  • Frábær og persónuleg leiðsögn
  • Sjávarlíffræðingar og vel þjálfuð áhöfn
  • Frítt internet um borð
  • Aðgangur að hvalasýningu Eldingar
  • Upphitaðir salir með stórum gluggum
  • Góð tónlist og afslappandi umhverfi
  • Myndir teknar af áhafnarmeðlimum (ef einhverjar)
  • Engir hvalir eða höfrungar? Komdu aftur frítt!

Við mælum með að allir klæði sig eftir veðri þar sem það er yfirleitt svalara úti á sjó en í landi. Hægt er að fá í láni teppi, regnjakka og heilgalla um borð.

Þar sem öryggi og ánægja farþega okkar er í hávegum höfð, er ferðin ávallt háð góðum veður- og sjóskilyrðum. Ferðinni gæti því verið aflýst með stuttum fyrirvara.
Við fylgjum siðareglum IceWhale varðandi ábyrga hvalaskoðun. Hafðu í huga að til að minnka áreiti gætum við þurft að halda fjarlægð við hvalina eða sigla áfram ef of margir bátar eru á sama stað í einu.

Bókaðu núna