Upplifið miðbæjarstemmarann, borðið frábæran mat og lendið í ævintýrum.

Í dagsferðinni okkar höfum við bókað skemmtilega upplifun, út að borða á einum af bestu veitingastöðunum sem Reykjavík hefur upp á að bjóða og ferðamáta sem þið veljið sjálf eftir hentisemi. Dagsferðin tekur 4-5 klukkutíma. Þegar þú bókar dagsferðina færðu sendan tölvupóst með öllum þeim upplýsingum sem þú þarft að vita áður en ferðin hefst.

Með einum smelli kaupir þú æðislega dagsferð fyrir eins marga eða fáa og þú vilt. Þú þarft ekki að hafa áhyggjur af neinu því að við sjáum um að bóka borð á veitingastað og skipuleggja ævintýri fyrir þig og þína. Það eina sem þú þarft að gera er að mæta!

Innifalið í verði:

Dagsferð í Reykjavík
Kvöldmatur á veitingastað
Afþreying
Óvæntar uppákomur

Ekki innifalið í verði:

Góða skapið og ævintýraþrá – þú þarft að koma með það með þér!

Gott er einnig að hafa í huga að klæða sig eftir veðri þann dag sem óvissuferð er farinn því, þið vitið – þetta er Ísland!

* Athugið að bóka þarf óvissuferð með að minnsta kosti vikufyrirvara til að tryggja að ferðin verði ógleymanleg.